Umdæmisþing Rótarý á Íslandi verður haldið í Hlégarði í Mosfellsbæ 9. - 10. október 2026.
Umdæmisþingið er í umsjá Rótarýklúbbs Mosfellssveitar í samvinnu við Rótarýumdæmið á Íslandi.
Á föstudeginum verður þingsetning og rótarýfundur sem hefst kl. 18.
Hefð er fyrir skemmtilegum fundi þar sem rótarýfélagar hittast og eiga góða kvöldstund saman. Ræðumaður kvöldsins verður á léttu nótunum og tónlist og söngur verður til að gera stundina enn skemmtilegri.
Makar rótarýfélaga og gestir eru velkomnir.
Á laugardeginum verður sjálft umdæmisþingið sem hefst með afhendingu þinggagna kl. 9 og lýkur um kl. 16.
Þar verður tekið á því helsta í Rótarýstarfinu, fjallað um félagafjölgun, Rótarýsjóðinn, aðgerðaráætlun Rótarý og æskulýðsstarf, allt efni sem er mikilvægt forystufólki rótarýklúbbanna og öðrum rótarýfélögum.
Verðlaun styrktarsjóðs verða afhent og Paul Harrisorður verða veittar.
Um kvöldið verður hátíðarkvöldverður, sem kalla má árshátíð rótarýfélaga með skemmtun og dansi fram eftir kvöldi.
Skráning og verð
Skráning skal gerð hér í félagakerfinu og mikilvægt að rótarýfélagar séu innskráðir þegar það er gert. Skrá skal maka og gesti með.
- Tilboðsverð á alla viðburðina er 27.000 kr.
- Rótarýfundur og setning: 6.500 kr.
- Þingdagskrá laugardag: 13.500 kr.
- Hátíðarkvöldverður: 11.000 kr.
Ath. Margir klúbbar styrkja þátttöku sinna félaga á þingið.