Soffía Gísladóttir fyrrverandi umdæmisstjóri hefur tekið sæti í stjórn Rotary International. Soffía er félagi í Rótarskoti í Norðaustri, sem er tengiklúbbur við Rótarýklúbb Húsavíkur.
Hún segist fyrst og fremst finna fyrir miklu þakklæti yfir því trausti sem henni hefur verið sýnt með kjöri í stjórn Rotary International.
„Þetta er mikill heiður, ekki síst þar sem ég er fyrsta íslenska konan sem tekur sæti í stjórn samtakanna. Ég er jafnframt þriðji Íslendingurinn sem gegnir þessu embætti,“ segir Soffía.
Helgi Tómasson úr Rótarýklúbbi Reykjavíkur sat í stjórn Rotary International árið 1950 og Ómar Steindórsson úr Rótarýklúbbi Keflavíkur sat þar á árunum 2002–2004.
Soffía situr í stjórninni fyrir hönd svæða 17 og 18, sem ná yfir öll Norðurlöndin, þ.m.t. Grænland, Færeyjar og Álandseyjar, auk Eystrasaltsríkjanna, Póllands og Rússlands.
Soffía segir þetta er fjölbreytt og öflugt svæði með 26 umdæmum, 1.318 Rótarýklúbbum, 67 Rotaract-klúbbum og rúmlega 41 þúsund félögum.
Mjög góð tilfinning
„Tilfinningin að taka sæti við stjórnarborðið er mjög góð. Rótarý leggur mikla áherslu á leiðtogaþjálfun og undirbúning og frá janúar 2025 hef ég verið í markvissri þjálfun fyrir þetta hlutverk. Á síðasta starfsári sat ég fundi stjórnar sem áheyrnarfulltrúi og því leið mér strax á heimavelli þegar ég tók formlega sæti í stjórninni eftir heimsþingið í Taipei í lok júní.“
Getur einstaklingur í stjórn haft einhver áhrif í svona miklu bákni?
„Rótarý er stór alþjóðleg hreyfing og auðvitað verða engar breytingar til fyrir tilstilli eins einstaklings. Styrkur samtakanna felst einmitt í samvinnu, öflugri grasrótarhreyfingu og lýðræðislegri ákvarðanatöku. Í stjórninni sitjum við 19 einstaklingar; 17 stjórnarmenn ásamt heimsforseta og verðandi heimsforseta.
Hvort ég geti haft áhrif? Já, sannarlega. Hlutverk mitt er að gæta hagsmuna og styðja þróun þess svæðis sem ég ber ábyrgð á, en jafnframt að taka þátt í stefnumótun og ákvörðunum sem varða alla alþjóðlegu hreyfinguna. Ég vinn einnig með öflugu svæðisteymi Rótarýfélaga á sviðum félagaþróunar, markaðsmála og Rótarýsjóðsins.
Ég ætla að gera mitt besta til að hafa jákvæð áhrif og vonast til þess að þetta hlutverk veki aukinn áhuga á Rótarý hér á landi og um heim allan. Ef einhvern tíma hefur verið þörf fyrir alþjóðlega hreyfingu sem byggir á þjónustu, vináttu, friði og samvinnu, þá er það nú,“ segir Soffía.
Verður þú með eitthvað ákveðið hlutverk í stjórninni?
„Já, auk almennra stjórnarstarfa hef ég fengið nokkur afmörkuð verkefni innan stjórnar Rotary International.
Ég gegni stöðu varaformanns í Programs (Participant Experience) Committee, sem fjallar meðal annars um málefni tengd félagaþróun, alþjóðlegum verkefnum Rótarý, heimsþingum, samskiptum, tækni- og fræðslumálum og fjölbreytileika innan hreyfingarinnar.
Jafnframt verð ég fulltrúi stjórnar í Joint Learning Committee, sem hefur það hlutverk að þróa og efla fræðslu- og þjálfunartækifæri fyrir leiðtoga og félaga Rótarý um allan heim.
Þá tek ég sæti í Committee Selection Task Force, sem fer yfir umsóknir um nefndarstörf innan Rotary International og leggur fram tillögur um skipanir í lykilhlutverk innan samtakanna.
Auk þessa mun ég koma fram fyrir hönd heimsforseta Rotary International við ýmis tækifæri og sækja ráðstefnur og viðburði víða um heim.“
Stór ráðstefna framundan og heimsókn heimsforseta
„Það sem er næst á dagskrá hjá mér, er ráðstefna sem ég stend fyrir, í Palanga í Litháen, í byrjun september þar sem 400–500 Rótarýfélagar frá ýmsum löndum koma saman til fræðslu, tengslamyndunar og samstarfs. Samhliða ráðstefnunni fer fram Rotariada, eins konar Ólympíumót Rótarýfélaga í Litháen, þar sem um 1.500 þátttakendur keppa í um 20 íþróttagreinum,“ segir Soffía sem leiðist greinilega ekki að margt sé í gangi.
Soffía upplýsir að í kjölfar ráðstefnunnar komi Yinka Babalola, heimsforseti Rotary International, í heimsókn til Íslands til að kynna sér starf íslenska Rótarýumdæmisins.
Ég hlakka mjög til næstu tveggja ára. Þetta er einstakt tækifæri til að leggja mitt af mörkum á alþjóðavettvangi og um leið vekja athygli á því góða starfi sem Rótarýfélagar vinna á Íslandi og um allan heim. Starf okkar byggist á hinu sígilda fjórprófi Rótarý:
- Er það satt og rétt?
- Er það drengilegt?
- Eykur það velvild og vinarhug?
- Er það öllum til góðs?
Þessi gildi hafa aldrei verið mikilvægari en nú,“ segir Soffía að lokum