Heimsforseti Rótarý kemur til Íslands

mánudagur, 24. ágúst 2026

Guðni

Olayinka (Yinka) Hakeem Babalola, heimsforseti Rótarý kemur til Íslands 7. september og verður í 2 daga.

Rótarýfélögum gefst kostur á að taka þátt í tveimur viðburðum með heimsforsetanum.

Annars vegar þriðudaginn 8. september, kl. 12 – 13 en þá gefst rótarýfélögum kostur á að borða hádegisverð með Yinka á rótarýfundi hjá Rótarýklúbbi Rvk-Austurbær á Hótel Natura.

Hins vegar sama dag að taka þátt í hátíðarkvöldverði kl. 20 á Hilton Hotel Nordica til heiðurs Yinka.

Rótarýfélagar eru hvattir til að nýta þetta einstaka tækifæri til að hitta heimsforseta Rótarý.

Þá verður Soffía Gísladóttir á báðum viðburðunum, en hún er fyrsta íslenska konan sem sest í stjórn Rótarý International.

Ath. að sætaframboð er mjög takmarkað á báða viðburðina.

Yianka kemur úr Rótarýklúbbi Trans Amadi í Nígeríu. Lesið nánar um  um Yinka Babalola hér og .

Bókanir

Bókanir á fundina óskast sendar á netfang umdæmisstjóra, umdstjori@rotary.is 

Olayinka H. Babalola