Rótarýklúbburinn Rvík-Miðborg
Rotary Club
Rótarýklúbburinn Rvík-Miðborg

Stofnun Rótaract klúbbs

25. maí 2022

Forseti Rótarýklúbbsins Reykjavík – Miðborg, Hrefna Sigríður Briem, tók að sér að leiða stofnun Rótaractklúbbsins. Hún hefur gert það í samstarfi við verðandi forseta Davíð Stefán Guðmundsson en Rótarýklúbburinn Reykjavík – Miðborg verður móðurklúbbur Rótaractklúbbsins í Reykjavík. Einnig hefur útbreiðslunefnd Rótarýumdæmisins lagt sitt að mörkum við kynningu á Rótaract og var formaður nefndarinnar Guðjón Sigurbjartsson viðstaddur stofnun klúbbsins.

Stofnfundur Rótaract klúbbsins í Reykjavík var haldinn hátíðlega þann 9. maí 2022. Fyrsti forseti Rótaractklúbbsins er Ásthildur Ómarsdóttir og með henni í stjórn eru: Ritari Rakel Anna Boulter, Gjaldkeri Gylfi Geir Albertsson og Stallari Þórdís Jónsdóttir.

Rótaract er eitt öflugasta og áhrifamesta verkefni Rótarý International og eru um 200.000 meðlimir Rótaract á heimsvísu með um 7.300 klúbba í rúmlega 150 löndum. Klúbbarnir eru alþjóðleg félags- og góðgerðasamtök fyrir ungt fólk á aldrinum 18 - 30 ára sem vill láta gott af sér leiða í samfélaginu.

2024 © Rótarýklúbburinn Rvík-Miðborg - allur réttur áskilinn