Hátíðartónleikar Rótarý á Íslandi

sunnudagur, 4. janúar 2026 16:00-17:30, Salurinn, Hamraborg 6, 200 Kópavogur

Hátíðartónleika Rótarý á Íslandi

Sérstakur heiðursgestur tónleikanna verður Víkingur Heiðar Ólafsson einn fremsti píanóleikari heims og styrkþegi sjóðsins árið 2005.

Víkingur mun afhenda styrki Tónlistarsjóðs Rótarý á tónleikunum og munu styrkþegarnir leika fyrir gesti ásamt fleira tónlistarfólki sem fengið hefur styrki sjóðsins í gegnum árin.

Á tónleikunum koma fram styrkþegar sjóðsins í ár þær Helga Diljá Jörundsdóttir, fiðluleikari og Ásta Dóra Finnsdóttir, píanóleikari.

Þá munu Jóna G. Kolbrúnardóttir, sópransöngkona og styrkþegi sjóðsins árið 2018 syngja en hún sem sló í gegn í Brúðkaupi Fígarós í vor. Með henni leikur Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari.

Þá munu Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir, sellóleikari og styrkþegi 2018 og Guðbjartur Hákonarson, fiðluleikari og styrkþegi 2023 einnig koma fram.

Tilgangur Tónlistarsjóðs Rótarý á Íslandi er að veita ungu tónlistarfólki sem skarað hefur fram úr á einhverju sviði tónlistar viðurkenningu í formi fjárstyrks til frekara náms. Veitt er úr sjóðnum árlega.

Mundu að þú þarft að kaupa miðann á Hátíðartónleikar Rótarý á Íslandi 2026 | Tix  (smelltu á linkinn)

Verð miða er 6.900 kr. og getur verið tilvalin jólagjöf að bjóða vini eða ættingja með.


Þín skráning

Aðal þátttakandi

Greiðsla gerð utan Polaris

Skráning


Skráning til: sunnudagur, 4. janúar 2026 kl. 15:00

Hámark fjölda þátttakenda: 292

Kaupa þarf miða hér: Hátíðartónleikar Rótarý á Íslandi 2026 | Tix



Meðlimir: Vinsamlegast innskráið ykkur fyrir skráningu.
Innskrá áður en bókað er á viðburð   

Aðal þátttakandi

Persónuverndarstefna

Þín skráning

Aðal þátttakandi

Greiðsla gerð utan Polaris