Félagar í Rótarýklúbbi Sauðárkróks við undirbúning Jólahlaðborðsins 2024
Rotarýklúbbur Sauðárkróks hélt sitt árlega jólahlaðborð laugardaginn 30.nóvember og bauð öllum íbúum Skagafjarðar til veislunnar. Þetta var í tíunda skiptið sem þessi viðburður var haldinn en Rótarýfélagar gerðu þetta í fyrsta sinn árið 2013.
Aðeins tvisvar hefur þetta fallið niður en það var í Covidárunum 2020 og 2021. Að þessu sinni var slegið aðsóknarmet, því yfir 700 manns mættu til veislunnar. Þess má geta að á Sauðárkróki búa um 2600 manns.
Líkt og undanfarin ár var boðið upp á , síld og rúgbrauð, hangikjöt, uppstúf og laufabrauð, bayonneskinka, kartöflur ásamt öðru góðu meðlæti. Þá er ótalið malt og appelsín, kaffi og konfekt.
Kvennakórinn Sóldísir söng fyrir gesti sem skemmtu sér ákaflega vel.
Þessi viðburður er ókeypis en fólk má láta fé af hendi rakna og er skemmst frá því að segja að ágóðinn rennur til góðra málefna í samfélaginu.