Við höfum undirritað samstarfssamning á milli Rótarýumdæmanna á Íslandi og Litháen.
Hann felur m.a. í sér stofnun Intercountry Committe (ICC) sem hefur það að markmiði að efla gagnkvæma þekkingu, skilning og friðsamlega samvinnu milli þjóða. Markmið með þessum samningi er fyrst og fremst að efla vináttu og samvinnu.
Mikil gleði ríkti við undirritunina og ánægja með þennan áfanga en fulltrúar sjö klúbba frá Litháen komu til Íslands í þeim tilgangi að vera viðstaddir undirritunina.
„Þessi samningur opnar dyr að fjölmörgum nýjum tækifærum til að efla vináttu og gagnkvæman skilning milli landanna, styðja við og fjölga sameiginlegum verkefnum á sviðum sem félagar hafa áhuga á, stofna systurklúbba og auka þátttöku í ungmennaskiptum og alþjóðlegri tengslamyndun,“ segir Jón Karl og Andrejus tekur í sama streng, „vinátta, samstarf og tengsl eru grunngildi Rótarý og við ætlum okkur að efla þetta allt með þessum samningi.“
Soffía, sem er fyrsti forseti ICC samnings á Íslandi segist bara sjá tækifæri í þessu fyrir rótarýfélaga hvors lands um sig. „Samningurinn veitir rótarýfélögum tækifæri til að heimsækja félaga í hinu landinu þar sem tekið er á móti þeim opnum örmum og sú heimsókn er síðan endurgoldin. Þá er mikill áhugi á að stofna til systurklúbba þar sem áhugamál tengir fólk saman, sem dæmi er klúbbur í Litháen að leita að klúbbi hér á landi sem hefur mikinn áhuga á veiði, segir Soffía og auglýsir eftir slíkum klúbbi hér á landi.“
Mingaile, sem er fyrsti forseti ICC samnings í Litháen tekur í sama streng og telur þennan samning skapa tækifæri sérstaklega fyrir yngri Rótarýfélaga í báðum löndum.
Undirritun ICC samnings, Mingaile Scherer, Jón Karl Ólafsson, Soffía Gísladóttir og Andrejus Gerascenko