Umdæmisþing 12.-13. október

mánudagur, 10. september 2018

Guðni Gíslason

„Byggjum brýr, tengjum fólk“

Þingið er opið öllum rótarýfélögum og mökum þeirra   Mikilvægt er að auka kynni rótarýfélaga, efla tengsl klúbba og styrkja samheldni, velvild og vinarhug þeirra sem vinna að Rótarýhugsjóninni. 
Umdæmisþingið er kjörinn vettvangur í þessu skyni auk þess að vera hátíð Rótarýfélaga sem þingið sækja.

Rótarýklúbbur Selfoss býður til 73. umdæmisþings Rótarýs á Íslandi og verður þingið haldið á Hótel Selfossi.
Í undirbúningsnefnd þingsins eru eftirtaldir klúbbfélagar; Björgvin Eggertsson, Björn B. Jónsson, Sædís Íva Elíasdóttir og Þorvarður Hjaltason formaður, sími 898 9184, thing@rotary.is.  Með nefndinni starfar einnig nýr umdæmisstjóri Garðar Eiríksson.

Nú hefur verið opnað fyrir skráningu og eru rótarýfélagar hvattir til þátttöku en skyldumæting er fyrir forseta og ritara klúbbanna.

   

Þinggjald 

Þinggjald:   kr. 7.000  (hádegisverður, kaffi o.fl.) Rótarýfundur föstudag: kr. 5.000  (matur og borðvín) Lokahóf laugardag: kr. 11.000  (fordrykkur, matur, borðvín o.fl.) Makadagskrá laugardag:  kr. 3.500 (hádegisverður innifalinn)  

Dagskrá

Föstudagur 12. október 17:45   Afhending þinggagna.    18:30   Móttaka í boði Árborgar    19:00   Setning Umdæmisþings 2018 – Garðar Eiríksson umdæmisstjóri   19:10–22:00   Rótarýfundur Rkl. Selfoss   Setning rótarýfundar og að henni lokinni léttur kvöldverður Erindi; Óli Þ. Guðbjartsson fyrrv. dómsmálaráðherra Ávarp fulltrúa Rotary International, Lena J. Mjerskaug, zone coordinator Ávarp fulltrúa norrænu umdæmanna, Susanne Gram-Hanssen, København Gruntvig Rotary Club, Distr 1470 Tilnefndur umdæmisstjóri 2020 – 2021 kynntur Tónlistarflutningur á milli atriða.     Laugardagur 13. október   9:15 – 12:00   Makadagskrá.      

Umdæmisþing Rótarý

09:15   Vinnustofur ritara, gjaldkera og forseta í umsjón aðstoðarumdæmisstjóra   10:00   Morgunkaffi   10:30   Ráðstefnugestir boðnir velkomnir – Garðar Eiríksson umdæmisstjóri   10:35   Látinna félaga minnst   10:50   Ársskýrsla  og reikningar umdæmisstjóra Knútur Óskarsson umdæmisstjóri 2017 -2018.   11:15   Fjárhagsáætlun 2018 - 2019 – Garðar Eiríksson umdæmisstjóri   11:25   Umræður   11:50   Viðurkenning fyrir 5 ára stöðuga greiðslu í Rótarýsjóðinn /Garðar Eiríksson umdæmisstjóri   12:00   Ný heimasíða Rótarý formlega tekin í notkun   12:10   Hádegisverður   13:10   Tónlistaratriði – Vignir Þór Stefánsson og Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir   13:20   Rótarýsjóðurinn byggir brýr – Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur   13:35   PIETA byggir brýr og tengir fólk – Sigríður Arnardóttir framkvstj.    13:50   Erindi – Bergstein Jónsson framkvæmdastjóra UNICEF   14:05   Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Árnesinga   14:20   Erindi –   14:45   Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Árnesinga   15:00   Kaffihlé   15:20   Viðurkenning afhent  úr Verðlauna- og styrktarsjóði Rótarý   15:30   Kynningar frá þeim sem fengu viðurkenningu   15:50   Boðið til næsta umdæmisþings 2019 – Anna Stefánsdóttir, Rkl.Borgum-Kópavogi, verðandi umdæmisstjóri   16:00   Önnur mál   16:15   Þingslit – Garðar Eiríksson umdæmisstjóri       19:00  Hátíðarkvöldverður - Hótel Selfoss        

Gisting 

Rótarýklúbbur Selfoss hefur samið við Hótel Selfoss um gistingu fyrir gesti á umdæmisþingi og hafa verði tekin frá 40 herbergi.  Ætlast er til að gestir bóki sjálfir gistinguna á  info@hotelselfoss.is. Fram þarf að koma hvort gist verður eina eða tvær nætur sem og  hvort um eins eða tveggja manna herbergi er að ræða.   Eins manns herbergi með morgunverði pr. nótt:  kr. 14.500. Tveggja manna herbergi með morgunverði:  kr. 16.500. Auka nótt í tveggja manna herbergi er kr.:  14.000 ( kr.7.000  á mann ) og og í eins manns herbergi kr. 9.000.