Golfmót Rótarýmanna á Íslandi var að þessu sinni haldið á Urriðavelli í Garðabæ 28. júní, hjá Golfklúbbnum Oddi. Það var Rótarýklúbbur Reykjavíkur sem sá um að halda mótið.
Að sögn Hjálmars Jónssonar, sem annaðist undirbúning mótsins, var veður slæmt þegar mótið hófst – og fór versnandi allan mótsdaginn. Fæstir létu það á sig fá og luku öllum 18 holum vallarins.
Úrslitin urðu sem hér segir:
Punktakeppni karla:
Hjálmar Jónsson
Grétar Leifsson
Gunnar Magnússon
Punktakeppni kvenna:
Margrét Halldórsdóttir
Sigríður Björg Stefánsdóttir
Auður Harpa Þórsdóttir
Sigurvegari í höggleik var Grétar Leifsson.
Keppni um farandbikar Rótarýhreyfingarinnar.
Þar telur stigaskor tveggja efstu keppenda úr hverjum klúbbi.
Rótarýklúbbur Reykjavíkur
Keppendur voru Hjálmar Jónsson og Jón Karl Ólafsson
Rótarýklúbburinn Borgir
Keppendur þær Margrét Halldórsdóttir og Málfríður K. Kristiansen
Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar
Keppendur Jóhannes Pálmi Hinriksson og Sigríður Björg Stefánsdóttir
Rótarýklúbbur Keflavíkur
Þar voru keppendur Guðlaugur Grétar Grétarsson og Georg Viðar Hannah.