Rótarýfélagar í vinaheimsókn í Suður-Svíþjóð

þriðjudagur, 24. maí 2022

Rotary Friendship Exchange, eða Vinaheimsóknir Rótarý hafa notið sívaxandi vinsælda og hefur náð til Íslands.

Fimm íslensk hjón eru nú í heimsókn í Suður-Svíþjóð í umdæmi 2400 þar sem þau dvelja í vikutíma. Hver hjón gista hjá tvennum sænskum hjónum. 

Sænsku rótarýfélagarnir hafa undirbúið viðburðarríka daga en heimsókninni lýkur á mánudag með rótarýfundi.

Íslenski Rotary Friendship Exchange hópurinn í Möckel snäs, fyrsta kvöldið í Svíþjóð.