Vinaliðaverkefnið og Sóldísir hlutu viðurkenningu og styrk Rótarý

fimmtudagur, 31. ágúst 2023

Verðlauna- og styrktarsjóður Rótarý á Íslandi afhendir á hverju ári viðurkenningu og styrk fyrir framúrskarandi eða nýstárlegt framtak sem unnið er í umdæminu á sviði mennta-, lista-, vísinda- eða atvinnumála og styðja samfélagsverkefni hérlendis.  

Að fengnum tilnefningum frá heimaklúbbi umdæmisstjóra, Rótarýklúbbi Sauðárkróks ákvað sjóðurinn að styðja að þessu sinni tvö verkefni.

Margrét Friðriksdóttir, formaður styrktar- og verðlaunasjóðs afhenti tvo styrki til verkefna. Annarsvegar hlutu Kvennakórinn Sóldísir styrk og hinsvegar Vinaliðaverkefnið sem gert er út frá Árskóla. Bæði verkefnin hlutu kr. 600.000.-styrk hvort.

Kvennakórinn Sóldísir

Kvennakórinn Sóldísir var stofnaður árið 2010 og í honum eru um 40 konur á öllum aldri víðsvegar úr Skagafirði. Kóralífið er blómlegt í Skagafirði en karlakórar hafa í gegnum tíðina verðið mest áberandi. Með tilkomu Sóldísa breyttist landslagið og þessar konur hafa sannarlega sannað og sýnt hversu þær eru megnugar. Kórinn er afar metnaðarfullur og hefur haldið fjölda tónleika bæði í Skagafirði og fyrir utan fjörðinn fagra. 

Vinaliðaverkefnið

Skólaárið 2012-13 hóf Árskóli þátttöku í norsku verkefni, „Trivselsprogrammet“ eða Vinaliðaverkefninu, ásamt öðrum skólum í Skagafirði. Var það liður í viðleitni skólanna til að hvetja nemendur til meiri þátttöku í afþreyingu og almennri hreyfingu í frímínútum og skapa um leið betri skólaanda.

Í Vinaliðaverkefninu setja ákveðnir nemendur, Vinaliðar, upp leiki og afþreyingu í frímínútum fyrir skólafélaga sína. Vinaliðarnir eru valdir af bekkjarfélögum og umsjónarkennurum og er hlutverk þeirra, auk þess að sjá um leikina, að fylgjast með samnemendum, veita þeim athygli sem eru einir og láta vita ef þeir verða varir við útilokun, einelti eða annað sem valdið getur nemendum vanlíðan.

Markmið Vinaliðaverkefnisins er forvörn gegn einelti, aukin hreyfing og leiðtogaþjálfun. Vinaliðaverkefnið gengur út á það að hvetja nemendur til meiri þátttöku í afþreyingu í frímínútunum og skapa betri skólaanda. Aðal markmiðið með þessu verkefni er að bjóða öllum nemendum skólans fjölbreyttara úrval afþreyingar í löngu frímínútum, þannig að bæði yngri og eldri nemendur skólans finni eitthvað við sitt hæfi. Markmiðið er að allir nemendur skólans hlakki til að mæta í skólann sinn, alla daga.

Árskóli er móðurskóli fyrir Vinaliðaverkefnið á landsvísu og aðstoðað aðra skóla við innleiðingu þess. Um 50 skólar á landsvísu taka þátt í verkefninu.

Margrét Friðriksdóttir, Helga Bergsdóttir, Selma Barðdal og Ómar Bragi Stefánsson umdæmisstjóri.