Sigríður Björk Gunnarsdóttir er tilnefnd umdæmisstjóri 2025-2026

miðvikudagur, 11. október 2023

Valnefnd Rótarý umdæmisins og umdæmisráð hafa staðfest að tilnefndur umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi tímabilið 2025-2026 verði Sigríður Björk Gunnarsdóttir.

Hún er tilnefnd úr Rótarýklúbbnum Hof-Garðabæ en hún hefur verið í þeim klúbbi frá árinu 2017. Sigríður Björk hefur setið í stjórn klúbbsins í fjögur ár og gegndi þar forsetaembætti 2021-2023.

Sigríður Björk hefur auk þess setið í vefnefnd og verið kynningarstjóri Rótarý á Íslandi.

Sigríður Björk er með BSc í hagfræði frá Háskóla Íslands og með kennsluréttindi sem framhaldsskólakennari. Hún hefur starfað sem forstöðurmaður rekstrardeildar Póst- og fjarskiptastofnunar, sinnt starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Samgöngustofu og starfar nú sem rekstrarstjóri Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands.

Sigríður Björk er 55 ára gömul, gift Hermanni Þráinssyni forstöðumanni hjá Landsbankanum og eiga þau tvær dætur fæddar 1996 og 1999.

Sigríður Björk hefur nú tekið sæti í umdæmisráði 2023-2024. Við tökum fagnandi á móti henni og óskum henni velfarnaðar í störfum fyrir Rótarý á Íslandi.

Sigríður Björk Gunnarsdóttir