Ingibjörn Sigurðsson úr Rótarýklúbbi Keflavíkur hefur verið valinn sem tilefndur umdæmisstjóri 2027-2028. Hlutverk umdæmisstjóra er að leiða starf Rótarý á Íslandi, koma fram fyrir hönd umdæmisins í alþjóðlegu samstarfi og vera tengiliður klúbbanna við alþjóðahreyfinguna - Rotary International (RI) ... Ingibjörn Sigurðsson úr Rótarýklúbbi Keflavíkur hefur verið valinn sem tilefndur umdæmisstjóri 2027-2028. Hlutverk umdæmisstjóra er að leiða starf Rótarý á Íslandi, koma fram fyrir hönd umdæmisins í alþjóðlegu samstarfi og vera tengiliður klúbbanna við alþjóðahreyfinguna - Rotary International (RI). Ingibjörn Sigurðsson gekk til liðs við Rótarýklúbb Keflavíkur 19. maí 2016 og hefur gegnt embættum stallara, ritara og síðast sem forseti 2023 til 2024. Ingibjörn er lærður kjötiðnaðarmaður og tók sveinspróf í þeirri iðn 1994. En þar sem hann ætlaði alltaf að verða bifvélavirki þá kláraði hann sveinspróf í bifvélvirkjun 2006 og starfaði við það. Ingibjörn er 55 ára og í sambúð með Ingibjörgu Steindórsdóttur. Ingbjörn á þrjár dætur og fjögur barnabörn og Ingibjörg á tvo syni. Hvernig fer valið fram? Árlega er kallað eftir tilnefningum til umdæmisstjóraefnis frá klúbbunum og valnefnd, sem skipuð er fyrrverandi umdæmisstjórum, fer yfir tilnefningarnar. Í sérlögum RI er að finna ákvæði um val á umdæmisstjóra, en þau kveða mjög ítarlega á um hvaða reglum skuli fylgja við valið og hvaða skilyrði umdæmisstjóraefni skal uppfylla. Valnefndinni ber að tilnefna þann félaga sem hún telur hæfastan hverju sinni og hefur tök á að þjóna sem umdæmisstjóri. Valið er ekki takmarkað við þær tilnefningar, sem klúbbar í umdæminu leggja fram. Skilyrði eru einkum þau að tilnefndur umdæmisstjóri hafi gegnt embætti forseta í rótarýklúbbi þegar hann er valinn, hafi verið í hreyfingunni í a.m.k. 7 ár áður en hann tekur við embættinu, sé virtur af störfum sínum og hafi haldgóða þekkingu á þeim skyldum sem starfinu fylgja.
Kynningarnefnd Rótarýumdæmisins pr@rotary.is Hlutverk kynningarnefndar er að halda ut...
The Rotary Foundation awards each year about 50 fully-funded fellowships for master’...
Hvatningarverðlaun í Borgarholtsskóla Árlega eru veitt verðlaun til nemenda sem sýni...