Þrír íslenskir rótarýskiptinemar á leið út
Þrír íslenskir skiptinemar eru á leið út eða farnir út á vegum íslenskra rótarýkúbba. Munu þeir dvelja á heimilum rótarýfélaga og kynnast annarri menningu og nýju tungumáli. Björk Víglundsdóttir fer til Brasilíu á vegum Rótarýklúbbsins Hofs, Vilhjálmur Árni Sigurðsson fer til Mexíkó á vegum Rótarýk
...
Þrír íslenskir skiptinemar eru á leið út eða farnir út á vegum íslenskra rótarýkúbba. Munu þeir dvelja á heimilum rótarýfélaga og kynnast annarri menningu og nýju tungumáli. Björk Víglundsdóttir fer til Brasilíu á vegum Rótarýklúbbsins Hofs, Vilhjálmur Árni Sigurðsson fer til Mexíkó á vegum Rótarýklúbbsins Rvk-Breiðholt og Fríða Björg Tómasdóttir fer til Frakklands á vegurm Rótarýklúbbs Akureyrar.
Á móti þeim koma tveir skiptinemar, stúlka frá Brasilíu sem heitir Ainoa Disner og frá Frakklandi kemur stúlka sem heitir Apauline Jade Boiteau Dagur Jónsson sem fór út í fyrra til Brasilíu og er nýkominn heim hitti æskulýðsnefndin og íslensku skiptinemana og gaf góð ráð til verðandi skiptinema. „Flottur fulltrúi skiptinema hann Dagur,“ segir Klara Lísa Hervaldsdóttir, fomarður æskulýðsnefnar umdæmisins.
Klara segir gaman að segja frá því að Jónína Björk Vilhjálmsdóttir sem fór út sem skiptinemi árið 1998-1999 til Ástralíu, hefur alla tíð haldið upp á gamla Rótarý jakkann sem skiptinemarnir gjarnan keppast við að fylla af minningum frá öðrum skiptinemum, Jónína sendi nefndinni mynd af gamla jakkanum sínum sem sjá má hér. Jónína er móðir skiptinemans Vilhjálms Árna.