Gott rótarýgolfmót þrátt fyrir slæmt veður

laugardagur, 14. júlí 2018

MOA

Golfmót Rótarýmanna á Íslandi var að þessu sinni haldið á Urriðavelli í Garðabæ 28. júní, hjá Golfklúbbnum Oddi. Það var Rótarýklúbbur Reykjavíkur sem sá um að halda mótið.
Að sögn Hjálmars Jónssonar, sem annaðist undirbúning mótsins, var veður slæmt þegar mótið hófst – og fór versnandi allan mótsdaginn. Fæstir létu það á sig fá og luku öllum 18 holum vallarins.     

Úrslitin urðu sem hér segir: Punktakeppni karla: Hjálmar Jónsson Grétar Leifsson Gunnar Magnússon Punktakeppni kvenna: Margrét Halldórsdóttir Sigríður Björg Stefánsdóttir Auður Harpa Þórsdóttir Sigurvegari í höggleik var Grétar Leifsson.   Keppni um farandbikar Rótarýhreyfingarinnar.   Þar telur stigaskor tveggja efstu keppenda úr hverjum klúbbi. Rótarýklúbbur Reykjavíkur
Keppendur voru Hjálmar Jónsson og Jón Karl Ólafsson Rótarýklúbburinn Borgir
Keppendur þær Margrét Halldórsdóttir og Málfríður K. Kristiansen Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar
Keppendur Jóhannes Pálmi Hinriksson og Sigríður Björg Stefánsdóttir Rótarýklúbbur Keflavíkur
Þar voru keppendur Guðlaugur Grétar Grétarsson og Georg Viðar Hannah.